Að segja til vegar


Citește textul și răspunde la întrebări.

Móttökustarfsmaður: Daginn, velkominn á snyrtivörusýninguna. Hvernig get ég aðstoðað?

Gestur: Daginn, getur þú sagt mér hvar handsnyrti keppnin fer fram?

Móttökustarfsmaður: Já, auðvitað. Hún verður haldin í sal C.

Gestur: Og hvar er hann?

Móttökustarfsmaður: Ég skal sýna þér það á korti af byggingunni. Til að fara í sal C gengurðu beint áfram. Farðu fram hjá sal A og farðu beint áfram, fram hjá nuddborðunum í sal B og þá ertu kominn í sal C. Þú hefur enn nokkurn tíma til stefnu. Keppnin hefst klukkan 3.

Gestur: Já, ég fer þangað eftir 30 mínútur. Hvar eru básarnir með andlitskremunum?

Móttökustarfsmaður: Farðu beint áfram og svo inn annan ganginn til hægri, básarnir eru við enda gangsins.

Gestur: Frábært, takk fyrir hjálpina.

Móttökustarfsmaður: Ekkert að þakka, góða skemmtun!