Leyfðu mér að sýna þér hvernig þetta er gert!
Læs teksten og svar på spørgsmålene.
Bifvélavirki: Í dag muntu skipta um bremsuklossa. Fyrst þarftu að fjarlægja hjólið. Þú þarft að byrja á því að skrúfa felgurærnar af.
Starfsnemi: Gott og vel. Hvaða verkfæri á ég að nota?
Bifvélavirki: Þú getur notað skrúflykilinn.
Starfsnemi: Hvar er skrúflykillinn?
Bifvélavirki: Í verkfærakassanum fyrir aftan þig.
Starfsnemi: Ég er búinn að fjarlægja hjólið. Hvernig fjarlægi ég gömlu bremsuklossana?
Bifvélavirki: Þú þarft að losa skrúfurnar.
Starfsnemi: Hvað nota ég til þess?
Bifvélavirki: Skrúfjárn. Gættu að því hvar þú leggur skrúfurnar frá þér því þú þarft að skrúfa þær aftur á.
Starfsnemi: Jæja, ég er búinn. Og núna?
Bifvélavirki: Nú geturðu komið nýju bremsuklossunum fyrir. Að lokum skaltu ganga úr skugga um að bremsurnar virki rétt.
Starfsnemi: Ég skil, takk. Ég geng úr skugga um það.