Komum þessu í verk!


Read the text and answer the questions.

Karl: Hæ, hvernig hefur þú það?

Kona: Ég er svolítið þreytt. Þetta er ekki besta byrjunin á vinnuvikunni en það er allt í lagi með mig. Hvað með þig?

Karl: Ég hef það mjög gott, takk.

Kona: Þú lítur vel út! Hvernig var helgin?

Karl: Hún var frábær! Ég fór í sumarbústað. Við fjölskyldan förum þangað oft til að anda að okkur hreinu lofti.

Kona: En hvað þú ert heppinn! Var veðrið gott?

Karl: Já, það var sól. Síðdegis á laugardaginn fórum við út á vatnið í bát með sonum okkar tveimur. Á sunnudaginn grilluðum við. Hvað með þig? Hvernig var helgin þín?

Kona: Svolítil vonbrigði... Því miður var veðrið ekki gott. Mig langaði til að fara út að hlaupa en það er alltaf erfiðara að hvetja sig áfram þegar það er rigning.

Karl: Ó, ég vissi ekki þú værir hlaupari!

Konan: Jú, mér finnst það gaman. Ég skráði mig í maraþon sem er eftir tvo mánuði, þannig að ég æfi mig tvö kvöld í viku í líkamsræktinni og einu sinni um hverja helgi í almenningsgarðinum.

Karl: Vá! Ég dáist að þér. Mér finnst svo leiðinlegt að hlaupa... Hvað gerðir þú í staðinn?

Kona: Laugardagsmorguninn fór ég í sund. Í gærkvöldi fór ég í bíó.

Karl: Hvað sástu?

Kona: Hryllingsmynd. En það var ekki góð hugmynd...

Karl: Nú, er það? Var þetta léleg mynd?

Kona: Ó, nei, myndin var frábær. En á eftir gat ég ekki sofnað fyrr en klukkan 3:00. Það var erfitt að vakna í morgun.

Karl: Ahh, nú skil ég hvers vegna þú fórst öfugt í peysuna ... þú varst þreytt í morgun.

Kona: Ha?? Snýr peysan mín öfugt?

Karl: Nei, ég er bara að grínast.

Konan: Haha, þú náðir mér! Jæja, ég þarf að fara að koma mér til að ég verði ekki of sein á fund með viðskiptavini.

Karl: Ókei. Sé þig seinna í mötuneytinu. Njóttu dagsins!

Kona: Sömuleiðis!