Leyfðu mér að sýna þér hvernig þetta er gert!


Read the text and answer the questions.

Vinnumaður: Ég ætla að sýna þér hvernig þú tínir grænmeti. Fyrst skaltu passa upp á líkamsstöðu þína.

Starfsnemi: Hvernig á líkamsstaðan að vera?

Vinnumaður: Þú ættir að standa bein í baki og beygja þig hægt niður til að forðast bakmeiðsli. Svo tekur þú körfuna og byrjar að tína grænmetið.

Starfsnemi: Hvar eru körfurnar?

Vinnumaður: Það eru alltaf körfur við dyr gróðurhússins.

Starfsnemi: Hvað nota ég til að tína grænmeti?

Vinnumaður: Þú getur notað hlújárn eða hendurnar. Það fer eftir grænmetinu.

Starfsnemi: Allt í lagi, ég skil. Hvernig veit ég hvort það sé þroskað?

Vinnumaður: Ég legg til að þú skoðir litinn og snertir þau.

Starfsnemi: Hvert set ég svo grænmetið?

Vinnumaður: Þú getur farið með grænmetið í vöruhúsið, þar sem það verður geymt.